Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Áhrif sela á laxfiska PDF Drucken E-Mail
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Montag, 06. April 2009 um 16:16 Uhr
There are no translations available.

Umræður um hversu stórt áhrif selir sem dvelja á ósasvæðum hafa á laxfiska og laxfiskaveiði manna í veiðiám hafa verið til staðar um ómunatíð. Það er ekki óalgengt að veiðifélög greiði bændum fyrir að láta fjarlægja seli í ósum, í þeirri trú að það muni leiða af sér aukinn fjöldi laxa í ánni. Þetta hefur í gegnum tíðina vakið miklar deilur á milli mismunandi hagsmunaaðila; veiðimanna annarsvegar og þeirra sem vilja nýta selaskoðun hinsvegar. Rannsóknir á þessu viðfangsefni eru af mjög skornum skammti og niðurstöður um áhrif þess að fjarlægja seli á ósasvæðum á fjölda veiddra laxa í ám skortir. Rannsóknir á áhrifum selveiða á stofnstærð sela eru einnig ófullnægjandi. 

Til að afla frekari vitneskju um áhrif sela sem dvelja á ósasvæðum á laxfiska, hefur rannsókn á vegum Veiðimálastofnunar og Selaseturs Íslands nýlega farið af stað. Skoðuð verður viðvera sela við ósasvæði í Húnaþingi vestra með því að merkja einstaka seli með útvarpsmerki. Hægt er þá að fylgjast með ferðum þessara einstaklinga inn á ósasvæðin, ásamt viðveru í hvert sinn. Fæðuöflun sela á ósasvæðum verður einnig könnuð og athugað hversu stór hluti af fæðu þeirra samanstendur af laxfiskum. Veiðimenn sem veiða í laxveiðiám Húnaþings vestra munu einnig veita upplýsingar um hlutfall selbitinna laxa.

Verkefnastjóri rannsóknar er Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst. og á sumrin hafa einnig sérfræðingar, líffræðinemar ásamt sjálfboðaliðum tekið þátt í rannsókninni.

sandra1_saursyni

Sandra M. Granquist við rannsóknir

Zuletzt aktualisiert am Mittwoch, 02. Februar 2011 um 14:58 Uhr
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is