|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Dienstag, 29. Juni 2010 um 15:24 Uhr |
|
There are no translations available.
Laugardaginn 26. júní opnaði Edda Lilja Guðmundsdóttir sýningu sína 52 húfur á 52 vikum í Selasetri Íslands. Edda Lilja hafði það að markmiði að gera eina húfu á viku í eitt ár. Engar tvær húfur máttu vera eins, í þær mátti aðeins nýta garn sem hún átti í byrjun árs og allar voru hannaðar af henni sjálfri.
“Heklaðu uppúr þér” (Laugardaginn 3. júlí frá kl. 09.00 – 12:00 og 13:00 – 16:00) Þann 3. júlí mun Edda Lilja bjóða upp á námskeið þar sem kenndar eru grunnaðferðir í hekli; fastapinnar, stuðlar, loftlykkjur, dúllur, heklað í hringi o.s.frv. Fyrir hádegi eru kenndar grunnaðferðir í gegnum vettling en eftir hádegi ýmsar aðferðir til skrauts t.d. blóm og dúllur. Verð fyrir ½ dag er krónur 4.000 en 8.000 fyrir heilan dag. Garn er á staðnum en þátttakendur eru beðnir um að koma með heklunálar af stærð ca. 4 ½ og 3.0. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 30. júní á netfangið
Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst.
eða í síma 451 2345. Hámarksfjöldi er 6 en lágmark 4. Fyrstur kemur fyrstur fær!
|