Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Selir merktir
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Donnerstag, 23. Juni 2011 um 11:12 Uhr
There are no translations available.

Í siðastu viku fór fram selamerkingar á vegum Selaseturs Íslands og Veiðimálastofnunar. Í ár voru 11 selir  merktir með útvarpssendum,  í fyrra voru einnig 5 selir merktir. Merkingarnar eru liður í verkefninu „Áhrif sela á laxfiska“. Markmið verkefnisins í heild er að ákvarða áhrif sela sem dvelja á ósasvæðum á laxfiska með því að rannsaka hegðun sela við fæðuöflun, ásamt því að kanna hvað þeir hafa étið. Merkingarnar munu gefa upplýsingar um hreyfimynstur sela í kringum ósasvæðin,og svara spurningum um hversu oft selir koma inn á svæðið og hvað þeir stoppa lengi í einu.

  Hvernig virkar þetta?

 Móttökustöð er sett upp nálægt ósasvæðunum. Selir eru síðan veiddir í net og merkið er svo límt á höfuð þeirra. Selirnir eru einnig merktir með kúa merki (eyrnamerki) í afturhreifa, til þess að gefa okkur kost á að þekkja seinna hvaða einstaklingar hafa áður verið merktir. Þegar merktir selir koma inn á ósasvæðin við Bjargós eða Sigríðarstaðaós nemur móttökustöðin merki frá útvarpssendum og gögn um viðveru þeirra skráist í stöðina. Gögn úr móttökustöðinni eru síðan sótt til úrvinnslu. Þegar merktir selir fara úr hárum að hausti detta útvarpsmerkin af þeim og þeir halda áfram að lifa eðlilegu lífi. Hér að neðan má sjá myndir af merkingunni.
Verkefnisstjóri rannsóknarinnar er Sandra Granquist (dýraatferlisfræðingur), starfsmaður Veiðimálastofnunar og Selasetur Íslands. Halldór Pálsson, bóndi á Súluvöllum, aðstoðaði við að veiða selina og lánaði okkur netin. Guðmundur Jóhannesson lánaði okkur bátinn sinn. Í verkefninu tók einnig sumarstarfsfólið okkar  Arna Björg Arnadóttir, Elsa Freschet frá Frakklandi og Eva Haunss frá Þýskalandi þátt. Stefán Helgi Pálsson og Jón Harry Njarðarsson aðstoðaði við að veiða seli.

    

rototag_afturhreif_small 

Mynd: Kúamerki í afturhreif (Myndataka Frank Brandford).

 

  tag_small

  Mynd: Útvarpsmerkið, sem er 22g þungt (Myndataka: Frank Bradford).

 

framkv_039_small

Mynd: Merktur selur með útvarpsmerki og kúamerki (Myndataka; Sandra Granquist).

framkv_047_small

Mynd: Merktur selur á leiðinni "heim" (Myndataka; Sandra Granquist)

Zuletzt aktualisiert am Montag, 27. Juni 2011 um 17:05 Uhr
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is