|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Montag, 26. Juni 2006 um 14:28 Uhr |
|
There are no translations available.
 
Í gær var Selasetur Íslands á Hvammstanga opnað með pompi og prakt. Heiðursgestir opnunarhátíðarinnar voru Hr. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og Hr Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, en sá síðar nefndi opnaði setrið formlega með hinni sígildu borðaklippingu. Í tilefni dagsins var síðan blásið til grillveislu í boði KS og KVH sláturhúss ehf, Vífilfells og Emmess íss. Gestir opnunarhátíðarinnar voru á þriðja hundraðið og skemmtu sér vel í blíðskaparveðri. Aðstandendur Selsetursins vilja þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóginn kærlega fyrir ómetanlega aðstoð. Einnig ber að þakka Brauð og kökugerðinni á Hvammstanga fyrir glæsilega hátíðartertu. Verið velkomin í Selasetur Íslands.
|
|
Zuletzt aktualisiert am Montag, 26. Juni 2006 um 14:32 Uhr |