Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Vel heppnað námskeið PDF Drucken E-Mail
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Dienstag, 16. Mai 2006 um 11:21 Uhr
There are no translations available.

Dagana 11. - 13. maí var námskeið um sjálfbæra og aðgengilega náttúruskoðun, haldið í Húnaþingi vestra og á Ströndum. Fyrirlesarar námskeiðsins komu víða að, er þar helst að nefna James MacLetchie frá Skotlandi, Carol Patterson fá Kananda og Hans Gelter frá Svíþjóð, en öll eru þau sérfræðingar á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu. Innlendir fyrirlesarar voru Kjartan Bollason frá Hólaskóla, Guðríður Þorvarðardóttir frá Umhverfisstofnun og Þórunn Edda Bjarnadóttir, sem fjallaði um útekt sína á aðgengi fatlaðra að ferðamannastöðum.

Þáttakendur námskeiðsins voru frá 6 þjóðlöndum auk Íslands og voru erlendu námskeiðsgestirnir á vegum NORCE strandmenningarverkefnisins. Í Húnaþingi vestra var fyrirhuguð starfsemi Selasetur Íslands kynnt, auk þess sem farið var í sela- og fuglaskoðunarferð um Vatnsnes. Þar var  kynnt fyrirhuguð uppbygging selaskoðunarstaða og notið kaffiveitinga í Hamarsbúð. Ferðin endaði svo á kvöldverði og fuglaskoðun á Gauksmýri. Á leiðinni á Strandir var Byggðasafnið á Reykjum skoðað. Á Ströndum var Galdrasafnið heimsótt, hangikjöt snætt á Café Riis og siglt með Sundhana út í Grímsey. Námskeiðið tókst í alla staði vel og voru bæði þátttakendur og skipuleggjendur hæst ánægðir. Skipuleggjendur vilja þakka námskeiðsgestum og fyrirlesurum kærlega fyrir komuna og vonast til að sjá þá fljótlega aftur í Húnaþingi og á Ströndum. Einnig ber að þakka Staðarskála, Þinghúsinu, Húsfreyjum á Vatnsnesi, Gauksmýri, Café Riis, Galdrasýningunni á Ströndum, Sundhana, Auði og aðstoðarkonum á Drangsnesi, Magnúsi leiðsögumanni, Arinbirni Jóhannssyni og öllum öðrum sem að móttöku námskeiðsgesta komu. Hafið bestu þakkir fyrir frábæra þjónustu.

Zuletzt aktualisiert am Mittwoch, 17. Mai 2006 um 09:10 Uhr
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is