Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Selasetur Íslands auglýsir stöðu framkvæmdastjóra PDF Drucken E-Mail
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Freitag, 23. Juli 2010 um 10:43 Uhr
There are no translations available.

logo_rettLaust er staða framkvæmdastjóra við Selasetur Íslands á Hvammstanga. Um er að ræða fullt starf í eitt ár með möguleika á framlengingu. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf í góðu og fjölskylduvænu samfélagi.

 

Í starfinu felst m.a.:

  • Umsjón með daglegum rekstri
  • Fjármögnun og skýrslugerð
  • Umsjón með sýningum setursins
  • Umsjón með vefsíðu setursins
  • Stjórn stærri og smærri samstarfsverkefna t.d. á sviði rannsókna og kynningarmála
  • Þátttaka í innlendum og erlendum samstarfsverkefnum
  • Vinna að frekari þróun og nýsköpun í starfsemi setursins

  

Hæfnis- og menntunarkröfur

  • Háskólamenntun og/eða starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Góð tungumálakunnátta. Nauðsynlegt er að geta bæði talað og skrifað góða ensku, þekking í Norðurlandamálum er kostur
  • Frumkvæði og ábyrgð
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af starfsmannahaldi er kostur en ekki skilyrði
  • Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst, eða í síðasta lagi 1. september 2010 (allavega að hluta).

Umsóknir skal senda á póstfangið Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst. . Allar nánari upplýsingar gefur Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir framkvæmdastjóri í síma 451 2345/8985 5233 eða á netfangið Diese E-Mail-Adresse ist gegen Spambots geschützt! Du musst JavaScript aktivieren, damit Du sie sehen kannst. . Umsóknarfrestur er til 6. ágúst.

 

Um Selasetur Íslands
Selasetur Íslands opnaði fyrstu sýningar sínar árið 2006. Fyrstu 3 árin var einn framkvæmdastjóri í fullu starfi við setrið auk sumarstarfsfólks í afgreiðslu. Árið 2009 var stofnuð rannsóknardeild við setrið í samvinnu við Hólaskóla og Veiðimálastofnun, en deildin starfar á sviðum selarannsókna, náttúrutengdrar ferðaþjónustu og byggðaþróunar. Markmið setursins hefur frá upphafi verið uppbygging sjálfbærrar náttúrutengdrar ferðaþjónustu en setrið hefur sinnt töluverðu frumkvöðlastarfi á því sviði, bæði hér heima og erlendis. Þó starf setursins hafi í fyrstu snúist að mestu um sýningahald og móttöku ferðamanna, felst stærstur hluti þess nú í verkefnastjórn og rannsóknum. Í dag sitja 3 starfsmenn í fullu starfi á setrinu, en yfir sumartímann fjölgar þeim verulega og skapar setrið nú um 5 ársverk sem flest krefjast háskólamenntunar.

 

Um Húnaþing vestra
Húnaþing vestra er nær frá botni Hrútafjarðar í vestri að Gljúfurá í Víðidal í austri. Um helmingur íbúa býr á landbúnaðarsvæðum sveitarfélagsins og er landbúnaður stærsta atvinnugreinin. Hvammstangi er stærsta þéttbýlið með ríflega 600 íbúa og fjölbreyttri atvinnustarfsemi, en í Húnaþingi vestra er rík hefð er fyrir frumkvöðlastarfi á ýmsum sviðum, þá sérstaklega á sviði ferðaþjónustu.

Húnaþing vestra er fjölskylduvænt sveitarfélag þar sem rekið er metnaðarfullt skólastarf, bæði á leikskóla- og grunnskólastigi og ýmsar tómstundir í boði fyrir börn á öllum aldri.

 

 

Zuletzt aktualisiert am Freitag, 30. Juli 2010 um 10:57 Uhr
 
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is