|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Dienstag, 19. Januar 2010 um 17:28 Uhr |
|
There are no translations available.
The Wild North verkefnið, með Selasetur Íslands í fararbroddi, og Alþjóðlegi dýraverndunarsjóðurinn (IFAW) hafa tekið höndum saman til að vekja athygli á miklvægi sjálfbærar þróunar náttúrutengdrar ferðaþjónustu á Íslandi. Samstarfsverkefni aðilanna, sem hefur fengið nafnið Þrjár perlur Norðursins, hefur það að markmiði að auka skilning og þekkingu á villtum spendýrum á Íslandi og hvernig ferðaþjónustan geti umgengist þá auðlind á sjálfbæran hátt. Aðilar verkefnisins munu m.a. vinna sameiginlega að fræðslu til almennings og betri upplýsingagjöf til ferðamanna. Í dag gengu fulltrúar verkefnisins á fund Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra og Katrínar Júlíusdóttur ráðherra ferðamála og kynntu helstu markmið þess.
|