|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Montag, 28. September 2009 um 15:30 Uhr |
|
There are no translations available.

Dagana 6. - 8. október munu samstarfsaðilar The Wild North verkefnisins sitja fund og námskeið í Þórshöfn í Færeyjum. Námskeiðið ber titilinn "Handle with care" (Umgangist varlega) og er hið fyrsta í þriggja námskeiða seríu á vegum verkefnisins. Samtals eru þátttakendur á fundinum og námskeiðinu um fjörutíu talsins, en skipulag viðburðarins er á höndum Selaseturs Íslands. Fulltrúar Selasetursins á fundinum verða Sandra M. Granquist og Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, er hún er jafnframt verkefnisstjóri The Wild North og sér um skipulagningu viðburðarins. Fundurinn og námskeiðið eru styrkt af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, NORA (Nordisk Atlantsamarbejde) og NATA (North Atlantic Tourism Association).
Mynd: Per Ivar Larsen við rannsóknir á vegum The Wild North í Kvænangen í Noregi
|