|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Mittwoch, 02. September 2009 um 11:35 Uhr |
|
There are no translations available.
Nú er orðið ljóst að sumarið 2009 er eitt stærsta ferðasumar í Húnaþingi vestra frá upphafi. Flestir ferðaþjónustuaðilar í héraðinu telja að um umtalsverða aukningu hafi verið að ræða frá fyrra ári, þá einkum í júní og ágúst og hleypur aukningin hjá flestum á bilinu 50 – 150%.
Umferð um Vatnsnes hefur verið þung í sumar þar sem þúsundir manna hafa skoðað seli og notið fagurrar náttúru. Hlutfallslega hefur erlendum ferðamönnum fjölgað mest, en aukning innlendra ferðamanna var einnig þó nokkur.
Aðstandendur kynningarátaksins Á selaslóðum, sem styrkt var af Vaxtarsamningi Norðurlands vestra, vakti heilmikla athygli á svæðinu sem ákjósanlegum áfangastað fjölskyldunnar.
Komum ferðamanna í Selasetur Íslands fjölgaði um tæp 47% í ágústmánuði miðað við sama tíma í fyrra, þar af fjölgaði Íslendingum um 18% en erlendum ferðamönum um 57%. Heildarfjölgun íslenskra gesta setursins fyrstu átta mánuði ársins er tæp 32% en erlendra gesta um 62%. Þann 1. september voru gestir setursins orðnir 5804, en það er 51% aukning frá fyrra ári. Sala aðgangseyris jókst að sama skapi um tæp 90%.
Mynd: Tröllkarlinn Hvítserkur er einn af vinsælum áfangastöðum ferðamanna á leið um Vatnsnes (Helgi Guðjónsson)
|