|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Dienstag, 25. August 2009 um 11:10 Uhr |
|
There are no translations available.

Mikill fjöldi ferðamanna hefur farið um Vatnsnes í sumar að sögn Guðmundar Jóhannessonar á Illugastöðum sem segir töluvert annríki hafa verið á selaskoðunarstaðnum, en tölur úr teljara á staðnum gefa til kynna að ríflega 10.000 manns hafi sótt staðinn heim frá seinnihluta júlí fram í seinnipart ágúst. Helgi Guðjónsson líffræðinemi hefur verið við rannsókarstörf á Illugastöðum í sumar á vegum Selaseturs Íslands þar sem hann hefur verið að skoða áhrif ferðamanna á seli, en meira er má lesa um störf Helga undir fipanum Starsfmannablogg. Tækifæri til myndatöku hafa verið ófá í sumar og náði Helgi þessari skemmtilegu mynd af gáskafullum landsel á Illugastöðum á dögunum.
Mynd: Helgi Guðjónsson
|
|
Zuletzt aktualisiert am Dienstag, 25. August 2009 um 11:19 Uhr |