|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Dienstag, 28. Juli 2009 um 10:59 Uhr |
|
There are no translations available.

Selatalningin mikla fór fram á sunnudaginn, en þetta er í þriðja skiptið sem selir eru taldir á þennan hátt í Húnaþingi vestra. Að þessu sinni voru sjálfboðaliðar um 45 talsins á öllum aldri, bæði innlendir og erlendir. Þeir sem lengst voru komnir var fjögurra manna fjölskylda frá Brasilíu sem hafði skipulagt ferð sína um Ísland til að geta tekið þátt í talningunni. Samtals má ætla að sjálboðaliðar hafi gengið ríflega 100 km við talninguna en talningarsvæðið sjálft var stækkað nokkuð frá fyrra ári og náði nú frá suðurenda Sigríðastaðavatns að Reykjum í Hrútafirði.
Strandlengjunni var skipt upp í 27 smærri svæði sem öll voru gengin á sama tíma í kringum háfjöru. Alls voru taldir 1019 selir í ár, sem verður að teljast mjög gott miðað við veðurskilyrði, en nokkuð sterkur vindur var á sumum svæðunum sem dró úr líkum á því að selir lægju uppi. Árið 2008 voru taldir 1124 selir, en þá fór talningin fram á mesta blíðviðrisdegi ársins.
Selasetur Íslands þakkar öllum þeim sem að talningunni komu, bæði starfsfólki og sjálfboðaliðum, kærlega fyrir ómetanlega hjálp, án ykkar væri talningin ekki möguleg.
Mynd: Hluti selatalningarmanna áður en haldið er í hann.
|
|
Zuletzt aktualisiert am Dienstag, 28. Juli 2009 um 11:11 Uhr |