|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Donnerstag, 02. Juli 2009 um 10:38 Uhr |
|
There are no translations available.
Gestatölur Selaseturs Íslands fyrir júní sýna mikla fjölgun erlendra ferðamanna eða rétt um 95% aukningu frá því í júní 2008. Heildaraukning erlendra ferðamanna frá áramótum er ríflega 99%. Að sama skapi fækkar innlendum gestum í júnímánuði um 5%, en heildarfækkun frá áramótum er um 6%. Aukning í sölu aðgangeyris í júnímánuði er einnig gríðarleg milli ára eða um 145%. Starfsfólk setursins er hæstánægt með frábæra sumarbyrjun og á von á enn frekari aukningu í júlí og ágúst.
Mynd: Úr Selasetri Íslands
|