|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Mittwoch, 13. Oktober 2010 um 14:30 Uhr |
|
There are no translations available.
Þessa dagana fundar The Wild North verkefnið á Vestfjörðum. Wild North er alþjóðlegt samstarfsverkefni með samstarfsaðila á Íslandi, í Noregi, Færeyjum og á Grænlandi undir stjórn Selaseturs Íslands. Ráðgjafi verkefnisins er Deborah Benham frá Dolphin Space Programme í Skotlandi. Verkefnisstjóri er Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, Selasetri Íslands.
Helstu markmið þátttakenda verkefnisins eru að leggja sitt af mörkum við uppbygginu sjálfbærrar, náttúrulífsferðaþjónustu (e. Sustainable wildlife tourism) á Norðurslóðum, og treysta með því undirstöður greinarinnar, afkomu þeirra sem í henni vinna og notkun auðlindarinnar til langs tíma.
Þátttakendur verkefnisins eru ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfa sig í ferðamennsku tengdri villtum dýrum, opinberir aðilar og ýmsar rannsóknastofnanir.
Fundurinn hófst í Melrakkasetrinu í Súðavík á mánudaginn. Í kjölfar fundarins er haldið námskeið sem er öllum opið gegn vægu gjaldi. Námskeiðið kallast Getting your Message Across - The role of interpretation in sustainable wildlife tourism. Kennari og umsjónarmaður er Dr. Deborah Benham en hún hefur mikla reynslu í þjálfun leiðsögumanna og þróun fyrirtækja í sjálfbærri ferðaþjónustu.
|