|
Geschrieben von: Selasetur Íslands
|
|
Donnerstag, 29. April 2010 um 13:38 Uhr |
|
There are no translations available.
 Stofnfundur Spendýrafélags Íslands verður haldinn í Háskóla Íslands, Öskju, föstudaginn 30. apríl kl. 17:00 í sal 128. Frumkvæði að stofnun félagsins áttu þær Sandra M. Granquist (Selasetur Íslands/Veiðimálstofnun) og Hrefna Sigurjónsdóttir (Háskóla Íslands) atferlisfræðingar, sem kölluðu saman fund á Hvanneyri í maí 2009 í því skyni að kanna áhuga vísindamanna slíkum félagsskap. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og voru þátttakendur fundarsins um 20 talsins, en úr þeim hópi var skipuð undirbúningsnefnd sem í sátu Sandra M. Granquist, Edda Elísabet Magnúsdóttir (Fræðasetur HÍ á Húsavík) og Rán Þórarinsdóttir (Náttúrufræðistofu Austurlands). Allt áhugafólk um spendýr og spendýrarannsóknir er hjartanlega velkomið á fundinn.
Mynd: Frá fyrsta fundi hópsins á Hvanneyri í maí 2009
|
|
Zuletzt aktualisiert am Freitag, 30. April 2010 um 08:35 Uhr |