
Velkomin á vefsíðu Selaseturs Íslands. Selasetrið hefur starfað frá árinu 2005 en frá upphafi hefur markmið þess og uppbygging verið mjög skýr. Meginmarkmið Selasetursins er að stuðla að aukinni ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, byggja upp og halda úti rekstri á setri sem fjallar um lifnaðarhætti sela við Ísland og standa að uppbyggingu sjálfbærrar náttúrutengdrar ferðaþjónustu, einkum er lýtur að selaskoðun. Selasetrið er öflugt rannsóknarsetur með tvær rannsóknardeildir annarsvegar líffræðirannsóknardeild og hinsvegar ferðamálarannsóknardeild þar sem stundaðar eru fjölbreyttar rannsóknir á selum við Ísland og upplýsingum um seli og önnur sjávarspendýr miðlað.
Selasetrið hefur frá upphafi rekið upplýsingamiðstöð fyrir Húnaþing vestra og vinnur að eflingu á allri fræðslu fyrir héraðið og miðlun upplýsinga til ferðamanna. Selasetrið hóf rekstur sinn að Brekkugötu 2, fyrrum verslun Sigurðar Pálmasonar en flutti árið 2011 í nýtt húsnæði í eigu Kaupfélags Vestur Húnvetninga við Hvammstangahöfn. Með nýrri aðstöðu eru margfalt betri aðstæður til að sinna allri starfsemi og þjónusta þann ört stækkandi hóp ferðamanna sem ákveður að njóta alls þess sem Húnaþing vestra hefur fram að færa.