|
|
|
|
2011.09.01 10:13:42 |
|
There are no translations available.
Hi everybody,
My Icelandic experience is almost done now…
People from the seal center kindly nicknamed me « shit lady », indeed during these 2 last months I collected 100 faeces and analyzed 197 from 2010 and 2011. I am now an expert in the seal faeces... a new thing to include in my resume I guess J . The collecting part was really fun because the seals were curious (as were the tourists) and we could see the seals really up close.
Unfortunately time was too short to identify all the otoliths found, but I expect Sandra to tell me the final result and elucidate the mystery of the common seals diet resident in the Hùnaflói bay.
I am really happy of this adventure and I will keep a lot of great landscapes, amazing sunsets (for romantics) and funny peoples in my mind.
One of my great memories (except all my excursions on the Brimill seal watching boat and the radio tagging of seals) would be the Great Seal Count, when I was alone on the top of the cliff, observing the seals feeding and resting 20 meters lower. It was my perfect moment.
Thanks to the staff of the Seal Center for this amazing adventure and if you are a tourist then come and visit the NEW seal center !!
Elsa Freschet
Lesson 2 :
Arctic tern=> Kría (be careful they can attack you !), salad=> iceberg, friend=> vinkona.
Tags:
Hits: 357 | Weiterlesen... |
|
2011.09.01 10:01:29 |
|
There are no translations available.
The 3 months in Hvammstangi went by in no time. It was an amazing experience and I learned a lot. Now and then I could see some of the tagged seals in Osar and the data from the radiostation shows us exactly when they are there. Going on the Seal Watching Boat, the “Brimill”, was a lot of fun, even when it was windy. Some tourists just love the adventure of getting wet from the waves. Many times we could also see a dolphin at the end of the trip. We could see geese during their moulting, and many other birds as well as see the seal pups getting independent of their mothers and starting to “hang out” with other pups, instead of their mums. The last few trips we started seeing a Grey seal among the Harbour seals which is quite exciting.
The other day I took apart a fish which was a new experience since you usually want to have the flesh to eat and throw away the bones, but we wanted to get the bones to have a sample to compare with the bones found in the seal faeces.
My trips around Vatnsnes gave me the impression that some seals come closer to land at places where there are no tourists and the opposite effect when there are tourists. In the last couple of weeks the seals started “playing” and fighting as part of their mating behaviour as well as making a lot of sounds and jumping around the water like a dolphin. This is great to see at Osar and put a smile on every tourists face (mine too of course).
I am so happy that I had the opportunity to work at the Seal Center during this summer and am curious what the data I collected will tell us after the full analysis.
I want to thank the whole Seal Center Crew and the Seal Watching Boat Crew as well as my new friends the Harbour Seals for this great summer.
Take care, Eva.
Tags:
Hits: 358 | Weiterlesen... |
|
2011.07.04 11:32:03 |
|
There are no translations available.
Komiði sæl öllsömul.
Benóný Þór heiti ég, og er sumarstarfsmaður hér á Selasetrinu í sumar. Þetta er annað árið í röð sem ég vinn hjá selasetrinu og mér líkar það vel. Mitt starf er að mestu leiti í móttökuni, og það helsta sem ég geri þar er að leiðbeina ferðamönnum um hvað skal gera í Húnaþingi Vestra. Af öllu því sem ég er spurður af yfir daginn standa tvær spurningar upp úr sem flestir spyrja, „Hvar getum við séð selina“ er önnur þeirra og „Veistu hvernig veðrið á að vera á næstuni“ er hin, en veðrið hefur því miður ekki leikið vel við okkur það sem af er sumars og hefur verið frekar kalt og vindasamt, að mínu mati.
Nú eru fluttningar byrjaðir að einhverju leyti, þó svo að ekki sé búið að flytja sýninguna um set. Byrjað er að flytja skrifstofurnar yfir í núverandi sýningarhúsnæði og vondandi verður hægt að flytja sýninguna yfir í nýja húsnæðið á næstu vikum. Unnið hefur verið að því að gera upp nýja húsnæðið í einhvern tíma núna og ég held að lokaniðurstaðan eigi eftir að koma skemmtilega á óvart.
Ég vonast til að sjá sem flest ykkar á Selasetrinu í sumar
Kveðja
Benóný Þór
Tags:
Comments 2 | Hits: 354 | Weiterlesen... |
|
2011.06.23 11:05:35 |
|
There are no translations available.
Hi,
I am Eva, one of the volunteers at the Seal Center this year. I am from Germany and it is my first time in Iceland. I am here since almost 3 weeks now, and I must say that I love it here. Everyone is really nice and there is so much to see and to learn.
The volunteers from last year already wrote in their blog what we are doing here. My job contains driving around Vatnsnes and to count seals at 8 different locations, I also go out on the Seal Watching boat and document the behaviour and the numbers of the seals we see. Since it is only the second year of the Seal Watching Boat Trips, we want to find out if we disturb the seals in their natural behaviour when we drive by on the Brimill and observe them.
Last week we tagged 11 seal pubs, which was an amazing experience. I hope to see some of them when I go seal counting tomorrow. We also went to Skagaströnd and took some samples from seals that were caught as bycatch and are stored for scientific research at BioPol Laboratory.
That is it for now, cheers, Eva.

Picture: Eva Haunss and Arna Björg Árnadóttir working in the field.
Tags:
Hits: 334 | Weiterlesen... |
|
2011.06.23 10:53:01 |
|
There are no translations available.
Hi !
I am Elsa, one of the volunteers of the seal center. I am in Hvammstangi since over a week now. I’m getting used to the « Icelandic way of life », I mean, living so close to the North Pole is different than my life in France (I am French by the way) but it’s really exciting. For example, since I came here I have never seen the night!! (Falling sleep can be a little difficult sometimes..). I am TRYING to learn some Icelandic words, even if it is complicated, my personal challenge is to learn and pronounce correctly the Icelandic names of some birds, whales and the different seals species!
Speaking about seals, my main work here will consist in understanding the effect of seals on salmonids. I will study the diet of seals by analyzing faeces samples and looking for bones and otoliths (a fish ear bone used for orientation and which has a different form in all fish species). With this study we could know if the diet of the seals is mainly composed of salmons which are an important economic source of the region.
For now, as the laboratory is not finished, I take part in different activities, for example last week we tagged 11 seal pups. Working all night long was a great experience. I enjoyed it mostly because for sure I will never be so close to these lovely creatures again.!
Lesson 1 :
In icelandic Harbor seal it’s Landselur and grey seal it’s ùtselur J, let’s go on ...

Picture: Elsa working in the field.
Tags:
Hits: 332 | Weiterlesen... |
|
2011.06.22 14:06:01 |
|
There are no translations available.
Heil og sæl öllsömul
Ég heiti Arna Björg og var að byrja að vinna hérna á Selasetrinu J
Ég er úr Njarðvík og var að klára Líffræðinám við Háskóla Íslands, ég verð að hluta til að vinna í móttökunni og að hluta til við að aðstoða við selarannsóknir.
Fyrstu dagarnir hafa gengið vel, ég hef tekið á móti mörgum ferðamönnum á Selasetrinu og reynt að svara spurningum þeirra eftir bestu getu og er ég sjálf búin að læra ýmislegt um Norðurlandið sem ég vissi ekki áður. Einnig hef ég verið að fara í kringum nesið að telja seli og verið að vinna úr gögnum frá Selatalningunni miklu síðustu ár. Ég hef aðeins kynnst samstarfsfélögum mínum og líst rosalega vel á mannskapinn, ég held að við eigum eftir að hafa gaman í sumar við að vinna áhugaverða vinnu.
Við fórum einnig á Skagaströnd í BioPol þar sem við vorum að taka DNA sýni og hársýni frá selum sem hafa óvart flækst í net hingað og þangað um landið.
Í síðustu viku fórum við að merkja seli, við fórum frá Hvammstanga kl.10 um kvöldið og fórum til að kanna hvort allir sendar virkuðu ekki örugglega. Við vorum komin niður í fjöru rúmlega kl. 1 eftir langa keyrslu í bíl, jeppa og svo í kerru aftan í traktor síðasta spölinn í gegnum sandhólana og út á sandana. Í fyrstu voru horfurnar ekki góðar, það var svo mikill straumur þar sem við ætluðum að veiða selina að báturinn togaðist bara afturábak, en eftir mikla umhugsun og tilraunir á öðrum aðferðum tókst þetta rosalega vel og við náðum að merkja 11 seli í heildina. Þegar við náðum sel festum við sendir á hann, klipptum nokkur hár af honum til að senda í isotoparannsóknir og tókum sýni fyrir DNA rannsóknir, eftir það slepptum við honum aftur í sjóinn. Selirnir voru frelsinu fegnir þegar þeir voru lausir. Með þessu getum við nú áttað okkur á því hvar þeir halda sig og hvað þeir eru að borða.
Þetta var mikil lífsreynsla og gaman að fá að taka þátt í svona verkefni.
Ég hlakka til að taka þátt í Selatalningunni miklu sem verður í júlí. Mér líst vel á Hvammstanga og ég hlakka til að kynnast lífinu hérna í þessu fallega bæjarfélagi.
Yfir höfuð er ég þakklát fyrir að fá vinnu við fagið sem ég er búin að vera að læra síðustu ár og hlakka til að kynnast alvöru líffræðivinnu með skemmtilegu fólki (í góðu veðri vonandi :)
Sjáumst í sumar J
Selakveðjur,
ArnaBjörg
Tags:
Hits: 303 | Weiterlesen... |
|
2010.10.12 19:59:18 |
|
There are no translations available.
Nú erum við Sandra staddar á Ísafirði þar sem The Wild North fundurinn hefur fundað síðustu 2 daga. Á morgun tekur svo við námskeið um lifandi leiðsögn og hvernig við getum nýtt slík tæki til að stuðla að sjálfbærni og umhverfisvernd. Námskeiðið heitir Get the Message Across og Deborah Benham frá Wild at Heart - Ecoholidays er kennarinn.
Það er frábært að sjá hvernig hópurinn er að stækka og eflast og verkefnið að fá mikla athygli víða um heim. Áfram við!!! :)
Kveðja, Hrafnhildur
Tags:
Comments 2 | Hits: 744 | Weiterlesen... |
|
2010.08.31 10:56:49 |
|
There are no translations available.
Nú er sumarið á enda. Seinasti vinnudagurinn hjá mér er liðinn og á meðan þú lest þetta er ég að gera mig líklegan til að byrja aftur í skólanum. Sumarið hefur bara verið nokkuð gott, skemmtileg vinna, gott samstarfsfólk og gott veður (allavegana að mestu leiti). Selatalning í lok júlí heppnaðist nokkuð vel, og taldir voru rúmlega 1000 selir. Unglistarhátiðin (Eldur í Húnaþingi), sem var seinustu helgina í júlí, heppnaðist vel að mínu mati, mikið af fólki á svæðinu og nóg af skemmtiefni, s.s. hinir árlegu tónleikar í Borgarvirki, tónleikar með Dikta, ball og ýmislegt fleira.
Ágúst hefur verið alveg ágætur, hann fór af stað með rosalega góðu veðri en seinustu vikuna hefur verið heldur grátt yfir, og stöku vatnsdropar. Ferðamannatímabilið virðist vera nánast komið að lokum, sem dæmi má nefna að í fimmtudaginn 26. ágúst komu ekki nema 20 ferðamenn inn til okkar, aðallega í upplýsingaleit. Fjöldi gesta þetta sumarið er kominn upp í u.þ.b. 5800 manns, og það má búast við að eitthvað bætist við í september. Opnunartíminn verður styttur í september, og verður þá opið á milli 10-14 á virkum dögum, svo að enn er hægt að líta inn ef einhver verður á ferðinni í september.
Annars vil ég bara þakka fyrir mig, þetta sumar hefur verið mikil og góð lífreynsla og ég tel mig hafa lært heilan helling í sumar.
Kv. Benóný Þór Björnsson
Tags:
Hits: 646 | Weiterlesen... |
|
2010.08.23 09:02:41 |
|
There are no translations available.
Mér finnst alveg ótrúlegt að sumarið sé að verða búið því það hefur liðið svo hratt! Ég ætla að segja ykkur frá því sem að mínu mati stendur mest upp úr sumrinu.
Stærsti viðburður sumarsins hér á setrinu var að sjálfsögðu Selatalningin mikla þann 25. júlí. Ég taldi frá merkjum Bálkastaða/Bessastaða að Sæbóli. Það var mjög gott veður þann dag, sól og blíða. Talningin byrjaði vel hjá mér, ég sá sel eftir að hafa gengið í aðeins 10 mínútur. Ég var viss um að ég myndi telja fjölmarga seli. Síðan gékk ég í 5 mínútur í viðbót.. svo 15 mínútur.... svo 45 mínutur... næsta sel taldi ég ca klukkutíma síðar en ég taldi þann fyrsta. Mér fannst ég hafa gengið óþarflega lengi til einskis. Síðan fór nú selunum að fjölga sem ég sá og lokatala mín var 14 selir og það tók mig ekki nema 3 tíma að labba þessa vegalengd. Ég var frekar þreytt að talningu lokinni enda hafði ég skellt mér á ball kvöldinu áður og var kannski ekki í besta ástandinu fyrir 3 tíma labb ;) En það er gaman að vita að það töldust fleiri selir en í fyrra sem eru bara góðar fréttir fyrir ferðamennina sem og starfsfólk setursins.
Ég hef haldið áfram að fara með selaskoðunarbátnum Brimli nánast daglega til að telja selina sem báturinn "sér". Þessar bátsferðir brjóta skemmtileg upp daginn hjá mér. Ég er með fáránlega flottar græjur í talninguna, svo góðan kíki að ég get talið fellingarnar á selunum og þar að auki er ég með fjarlægðarmæli. Það næsta sem við höfum komist selunum eru 38 metrar!!! Það er bara nokkuð gott! Það getur verið alveg ótrúlega fyndið að sjá hvernig selirnir flatmaga á steinunum og kippa sér varla upp við bátinn og fólkið á honum. Við höfum séð selamömmu siða til kópinn sinn, útsel sem hefur flutt inn á landselina, smávægileg áflog milli brimla og það skemmtilegasta var þegar við sáum einn selinn leika sirkuslistir fyrir okkur. Sá selur stökk upp úr sjónum og lék það eftir nokkrum sinnum. Að sjálfsögðu varð allt vitlaust á bátnum af gleði :)
Vinnan hér á Selasetrinu hefur verið afar skemmtileg og lærdómsrík. Fyrir utan að vera komin með nördisma fyrir selum þá hef ég kynnst góðu samstarfsfólki og lært meira um eigin heimabyggð. Njótið restarinnar af sumrinu blómin mín og sjáumst vonandi á Selasetrinu eða á Brimli.
Selaknús, Sigurrós
Tags:
Hits: 626 | Weiterlesen... |
|
2010.08.17 11:10:41 |
|
There are no translations available.
Jæja, þá fer að koma að lokum sumars og margt hefur gerst hérna í Húnaþingi vestra.
Við erum bún að vera mjög heppin með veður í seinni part júlí og byrjun ágúst. Sól og vel yfir 20 stiga hiti dag eftir dag.
Um verslunarmannahelgi var mikil umferð um Selasetrið og alltaf finnst mér jafn skemmtilegt að sjá hve margir íslendingar koma að heimsækja okkur.
Myndlista og bókagerða sýningin “Grafík og Skræður” eftir Guðlaugu Friðriksdóttur var í Selasetrinu mest allan júlí og fengu margir foreldrar hugmynd frá sýningunni um að láta börnin sín sem voru að nálgast fermingaraldurinn búa til sína eigin gestabók. Þar á meðal var einn faðir sem ætlaði að láta drenginn sinn prjóna kápuna á gestabókinna.
Síðan verð ég að segja frá því að Selasetrið fékk nýlega nýja liti á boli í barnastærð og hefur bolasalan rokið upp úr öllu valdi.
Unglistarhátíðin Eldur í Húnaþingi var haldin á Hvammstanga 22 – 25 ágúst og skreyttu heimamenn göturnar sínar og bóndabæi í fyrirfram ákveðnum litum. Flestir lögðu sig mikið fram og var bærinn og sveitin fagur gul, rauð, græn og blá. Þetta kom erlendum ferðamönnum skemmtilega á óvart og fékk ég margar fyrirspurnir um hvað væri í gangi.
Grettishátíð í Grettisbóli fór fram á Laugarbakka þann 7 – 8 ágúst og voru víkingabúðir, mismunandi víkingarnámskeiði og víkingamarkaður fyrir gesti og gangandi. Hina árlega aflraunakeppni fór fram á laugardeginum með pompi og prakt og var góð þáttaka.
Núna hvet ég alla þá sem ekki hafa komið í heimsókn og eiga leið framhjá að kíkja á Selasetrið áður en við lokum fyrir veturinn. Í september verður opið frá 10 – 14 alla daga annars er alltaf hægt að opna setrið samkvæmt samkomulagi.
Ég vona að sumarið sé búið að vera ykkur ánægjuríkt og að þið njótið síðustu daga sumarsins með bros á vör.
Kveðja, Karólína.
Tags:
Hits: 715 | Weiterlesen... |
|
2010.08.16 11:09:42 |
|
There are no translations available.
Hi everybody!
This is Laila and Ester. We would like to tell you a bit what we have been doing since the last blog.
About our job as a volunteers, we are happy to say that we already collected a lot of data for the studies and we started to analyse it. Besides, we have also watched few times some of the seals we tagged. For the moment, it has always been around the Ósar area. This was absolutely amazing for us and a fantastic thing for the project.
As a Seal Center’s volunteers we also took part in the Great Seal Counting Day. The previous days before the counting, and together with the people of the Museum, we put the yellow sticks and flags all along the coast in order every participant knew the limits of his area. And of course, we also participated in the counting. Each of us did a couple of sections. It was a really nice experience!
On the other hand, we had the opportunity to enjoy the Hvammstangi Summer Festival. We went to the parade, the Borgavirki concert, we did the Jogging day and of course we went to the night dance :)
As you can see, we are really into the Icelandic live, culture and costumes.
Hope you have enjoyed our news.
Keep in touch!
Laila and Ester
Tags:
Hits: 828 | Weiterlesen... |
|
2010.07.28 09:29:45 |
|
There are no translations available.
Margt hefur gerst að undanförnu hér á Selasetrinu! Eins og þið vitið mörg, hefur starfsfólki setursins fjölgað úr 3 upp í 8 nú yfir sumartímann. Fyrir utan framkvæmdastjórann Hrafnhildi Ýr og okkur (Sandra og Per Åke), eru núna Karólína (móttaka), Sigurrós (rannsóknir), Benóný (móttaka og rannsóknir) og síðast en ekki síst sjálfboðaliðarnir okkar frá Spáni; Laila og Ester (selarannsóknir).
Í byrjun sumarsins fóru Hrafnhildur, Per Åke og Sandra á ráðstefnu í Abisko, norður Svíþjóð. Ráðstefnan hét “Tourism, People and Protected Areas in Polar Wildness” og við kynntum þar okkar verkefni The Wild North. Á ráðstefnunni kynntumst við nýju (og kunnuglegu) athyglisverðu fólki!
Rannsóknir okkar eru í fullum gangi eins og er. Líffræðingar og ferðamálafræðingar þurfa oft að framkvæma stærri partinn af vettvangsvinnu sinni á sumrin og við hér á Selasetrinu erum engin undantekning hvað það varðar. Á Vatnsnesi eru spænsku stelpurnar okkar á fullu við að telja seli og safna gögnum um hegðun sela á selaskoðunarstöðunum. Þær standa sig með sóma og hafa nú þegar safnað mikið af gögnum fyrir okkur að greina.
Í júní og byrjun júlí merktum við seli með útvarpssendum, til þess að rannsaka hvernig selir hreyfa sig í kringum Bjargós og Sigríðastaðaós. Ef þú sérð seli með loftnet á hausnum einhversstaðar í kringum Vatnsnes, getur verið gott að vita að það er ekki um geimveru að ræða, heldur er þetta bara merktur selur! Fljótlega verður hægt að lesa meira um þessar merkingar á heimasíðu okkar.
Mynd: Merktur selur með útvarpssendi á hausnum og kúamerki í afturhreifanum.
Mynd: Selamerkingateymið: Garðar frá Stórhóli, Halldór frá Súluvöllum, Ester (sjálfboðaliði frá Spáni) og Sandra (verkefnisstjóri frá Selasetri Íslands). Laila (sjálfboðaliði frá Spáni) og Olle Karlsson (sænskur selasérfræðingur) tóku einnig þátt í merkingunum.
Annað viðfangsefni sem við erum að vinna að er að kanna fjölda ferðamanna sem koma til Hvammstanga (og kíkja við í Selasetrinu) og skoða bakgrunn þeirra. Í fyrra heimsóttu um það bil 6 000 ferðamenn setrið og 4.500 af þeim voru erlendir ferðamenn. Þegar horft er á tölur frá því í ár, litur út fyrir að gestatölur ársins í ár verði hærri. Þjóðverjar og Frakkar eru fjölmennastir, en það koma einnig margir frá Sviss og Austurríki að heimsækja okkur. Næstu nágrannar okkar (Skandinavar og Bretar) eru ennþá mjög fáir. Í viðtölun sem við erum að taka við ferðamenn sem koma hingað, segja flestir að ástæða þess að þeir koma hingað sé að þeir hafa áhuga á selskoðun.
Við veltum einnig fyrir okkur hversu mikið ferðamenn eru að skilja eftir á svæðinu okkar. Við getum áætlað að hver ferðamaður eyði að lágmarki 1.000 krónum á dag, sem skilar svæðinu um 6.000.000 í tekjum á ári. Það er þó mun líklega að hver ferðamaður eyði í kringum 10.000kr á mann, sem gefur okkur 60 miljónir á ári. Vert er að taka fram að gestir á Selasetrinu eru aðeins hluti þeirra ferðamanna sem koma á svæðið, en ætla má að þeir séu á milli 20 - 30.000 á ári hverju (tekjur upp á 200 - 300 milljónir). Það gefur því auga leið að ferðaþjónusta skipar stóran sess í því að halda uppi og bæta margskonar þjónustu á staðnum. Við þetta bætast svo útsvar og opinber gjöld þeirra sem þjónusta ferðamenn á einhvern hátt.
Í ágúst munu Per Åke og Sandra fara á aðra ráðstefnu, núna í Lettlandi. Þar munum við kynna ákveðna hluti úr rannsókninni okkar. Við erum eins og er að skipuleggja kynninguna okkar og að greina gögn sem við höfum safnað síðastliðin ár. Við hlökkum mikið til ráðstefnunnar. Það veitir manni alltaf innblástur að fara á ráðstefnu, þó svo að það sé mjög mikill vinna að undirbúa kynningu.
Hafið það gott, Sandra Granquist and Per Åke Nilsson
Tags:
Hits: 808 | Weiterlesen... |
|
2010.07.19 10:46:18 |
|
There are no translations available.
Sæl veriði!
Nú er sumarið hálfnað og því kominn tími til að fara yfir hvað hefur gengið á undan.
Tvær listasýningar hafa komið og farið, og sú þriðja er í gangi, en sú sýning ber nafnið Grafík og skræður, og er samblanda af myndlistasýningu og sýningu á bókbandi.
Fjöldi heimsókna í Selasetrið hefur aukist hægt og örugglega, frá þeim 2-3 einstaklingum sem komu á dag þegar ég byrjaði að vinna hér í maí, upp í að nú eru að koma til okkar frá 50 upp í 100 manns á dag. Einnig hefur Selasetrið fengið nokkra athygli í sumar, bæði hef ég fengið til mín leiðsögumenn sem hafa viljað fræðast um safnið til þess að geta komið með hópa, og einnig kom til mín hún Steinunn Harðardóttir, sem sér um útvarpsþáttinn Út um græna grundu á Rás 1, og tók viðtal við mig sem var síðan útvarpað í þætti hennar. Hægt er að lesa um þáttinn og hlusta hér.
Óðum styttist í Selatalninguna miklu, en hún er dagsett sunnudaginn 25. júlí og hvet ég alla sem hafa áhuga á að leggja hönd á plóg að hafa samband við okkur á Selasetrið.
Annars er það nú ekki fleira sem ég hef frá að segja eins og er og enda þá á því að hvetja sem alla flesta að leggja leið sína til Húnaþings vestra.
Benóný Þór
Tags:
Hits: 748 | Weiterlesen... |
|
2010.07.19 10:40:08 |
|
There are no translations available.
Það er alltaf nóg um að vera í Selasetrinu og ekki vantar strauminn af bæði íslenskum og erlendum ferðamönnum sem streyma inn á hverjum degi. Við reynum að fá sem flesta erlenda ferðamenn til að svara stuttri könnun fyrir okkur, í könnuninni eru ýmsar almennar spurningar og einnig er spurt um áhugasvið þeirra á Íslandi, hvort þeir hafi komið áður, vilji koma aftur að vetri til og hvernig Íslandsferðin hafi til tekist svo einhvað sé nefnt.
Við höfum fengið mjög jákvæð svör frá ferðamönnunum. Einnig hafa þeir kost á því að útskýra áhuga sinn á selum í þessari könnun. Mjög margir taka það fram að selir séu sætir, fallegir eða skemmtileg dýr sem gaman er að fylgjast með. Aðrir nefna að það séu ekki selir í þeirra heimalandi og þess vegna finnist þeim selir svo spennandi. Flest svörin eru á þá leið að þeir hafi jákvæða skoðun á selum og þeim finnst stórkostlegt að geta séð þá í sínu náttúrulega umhverfi en ekki aðeins í dýragörðum eins og oft erlendis.
Einnig er farið að senda starfsmann Selasetursins (mig) með selaskoðunarbátnum Brimli til að kanna hvernig selirnir bregðast við návist manna af sjó. Enn sem komið hef ég ekki farið margar ferðir með Brimli en stefnan er tekin á að fara með þeim 2-3 ferðir í viku. Þessar selaskoðunarferðir með Brimli hafa svo sannarlega slegið í gegn hjá ferðamönnunum. Við á Selasetrinun erum dugleg að benda ferðafólkinu á þessar ferðir enda eru þær mjög skemmtilegar. Hver ferð tekur u.þ.b. 2 tíma og eftir að hafa fylgst með selunum þá fá allir heitt kakó og bakkelsi. Gæti ekki verið betra :)
Að lokum við ég segja hversu ánægjulegt það er að sjá alla þá Íslendinga sem leggja leið sína á Selasetrið. Gaman er að sjá áhugann hjá börnunum og oft fáum við auka fróðleik frá eldri kynslóðinni sem hefur ef til vill meiri reynslu og aðra þekkingu af selum, selveiðum, matreiddum sel og fleira en við höfum. Alltaf er gaman að auka innistæðuna í þekkingabankanum sínum :)
Takk fyrir mig og sjáumst á Selasetrinu kveðja, Sigurrós
Tags:
Hits: 656 | Weiterlesen... |
|
2010.07.05 13:43:46 |
|
There are no translations available.
Heil og sæl öll sömul,
Núna er Selasetrið búið að vera opið í aðeins meira en mánuð og gestagangur í júní var meiri í ár en í fyrra. Þannig að hvorki eldgosið né kreppan er að hafa mikil áhrif á ferðamannastrauminn hér fyrir norðan.
Það er alltaf gaman að sjá hve margir íslendingar hafa áhuga á að kíkja á safnið og hafa þeir verið að koma í tugatali á hverjum degi;)
Mikill áhugi er á Íslandi þessa dagana og höfum við fengið kvikmyndamenn, blaðamenn og rithöfunda í heimsókn til að fræðast um safnið og selina hér í nágreninu.
Einnig hef ég hitt marga gesti sem hafa sagt mér frá eigin reynslu af selum og er alltaf gaman að fá að heyra þeirra sögur og fræðast um hvernig selurinn hélt í þeim líf hér árum áður. Þannig að ef þið hafið eitthverjar skemmtilegar eða fræðandi sögur um seli eða myndir endilega sendið okkur tölvupóst eða komið og segið okkur frá og það er aldrei að vita hvort að við hengjum þær upp á vegginn hjá okkur í sumar.
Fyrir stuttu opnaði listakonan Edda Lilja Guðmundsdóttiruna sýninguna "52 húfur á 52 vikum" og hefur hún vakið mikla lukku meðal gesta. Erlendir ferðamenn hafa spurt hvort að mögulegt væri að kaupa eina og eina húfu en ég hef benda þeim að kíkja í Kidka í staðinn.
María Sigurðardóttir opnaði síðan rosalega kósý Kaffihús hér við hliðina á okkur fyrir stuttu sem heitir Hlaðan og hefur verið stanslaus straumur þangað inn af ferðamönnum jafnt og heimamönnum. Heimagerða súpan og heimabakaða brauðið hennar Maríu hefur verið að halda lífi í okkur hér á Selastrinu ;)
Síðan hvet ég alla að kíkja til okkar á safnadaginn 11. júlí þar sem það verður ókeypis aðgangur.
Munið síðan essin þrjú:
SUMAR, SVEITASÆLA, SELASETUR
Kveðja Karólína
Tags:
Hits: 771 | Weiterlesen... |
|
2010.06.28 10:13:32 |
|
There are no translations available.
Hi everybody!
We are Laila and Ester, the two Spanish volunteers. This is our first time in Iceland. We arrived at the begining of June and we will be here until the begining of September.
We are taking part in two projects: one that studies how toursim affects the seals behaviour and other that wants to find out the relationship between seals and salmonids.
Our main tasks are to count seals and to observe their behaviour. We count seals in seven points. Some of these points are Svalbard, Illugastadir and Osar, three well known seal watching places.
Apart from that, we also take part in other activities related with these projects, such as: to tag seals, to do lab work or to collect faeces.
This is a great experience for us. Everyday we learn something new.
On the other hand, we are also enjoying a lot our day by day life here in Hvammstangi; since its wonderful landscapes to its friendly and helpful inhabitants. One of the things we love is to take long walks arround the area in our free time. Besides, we like bird watching so one of our personal goals during our stage in the Vatnsnes peninsula is to learn at least one new species of bird per week.
That is all for the moment. We will tell you more in the next blog. Meanwhile, we will try to enjoy our Icelandic experience as much as possible.
Keep in touch,
Laila and Ester
Tags:
Hits: 672 | Weiterlesen... |
|
2010.06.03 14:25:36 |
|
There are no translations available.
Góðan og blessaðan daginn!
Eitthvað hefur nú misfarist að blogga hjá okkur undanfarið, en við afsökum okkur með brjálaðri vinnutörn. Hér er allt á fullu við að gera klárt fyrir opnanir fyrstu sýninganna næsta sunnudag, en þá hefst formleg sumardagskrá setursins. Það er mjög gaman að upplifa hversu mikinn áhuga listafólkið sjálft er farið að hafa á því að sýna hjá okkur, en fjórar sýningar eru bókaðar í sumar.
Fyrsti sjálfboðaliðinn okkar hún Laila frá Spáni, er komin til landsins og farin að vinna við rannsóknir á selum. Aðrir sumarstarfsmenn eru Sigurrós Björg Sigvaldadóttir (rannsóknir), Benóný Björnsson (rannsóknir og afgreiðsla/upplýsingamiðstöð) og Karólína Gunnarsdóttir (afgreiðsla/upplýsingamiðstöð).
Starfsmenn munu skiptast á að blogga hér í sumar og því ætti að vera af nógu að taka hér!
Við vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát í sumar :)
Kveðja, Hrafnhildur
Tags:
Hits: 704 | Weiterlesen... |
|
2010.04.30 10:16:12 |
|
There are no translations available.
Nú er ég búinn að heilsa sumri í annað skipti hér á Íslandi. Líkt og síðasta sumar, var ennþá vetur. Það er hinsvegar Íslands í hnotskurn, eins og ég komiðst að: alltaf breytilegt og fullt af óvæntum upplifunum.
Í febrúar fórum við Lena á Gerplu í Þjóðleikhúsinu. Ég hafði lesið bæði bókina og söguna svo við vorum nokkuð kunnug söguþræðinum, jafnvel þó við skildum ekki alla brandarana. Við kunnum hins vegar vel að meta leikstjórnina, þið eigið mjög góða leikstjóra hér á Íslandi.
Eftir leikritið langað okkur að fá okkur öl svo við heimsóttum einn af fjölmörgum börum í nágrenninu. Barinn var á fyrstu hæð, sem okkur fannst nokkuð skrítið, og við vorum nær einu gestirnir. Við fengum bjórinn okkar og settumst við langt borð þar sem við gátum notið útsýnisins yfir mannlífið fyrir utan. Íslensk par kom inn á barinn og spurði hvort þau mættu sitja hjá okkur og jánkuðum við því. Eftir stuttan tíma hófust skemmtilegar samræður. Þau sögðu okkur að eftir stutta stund yrðu tónleikar þarna á barnum með einni af elstu pönk-rokk hljómsveitum Íslands, Fræbblarnir, og að þau væru skyld einhverjum hljómsveitarmeðlimanna. Eftir fimm mínútur voru næstum 20 manns sitjandi við borðið okkar, allir tengdir hljómsveitinni á einhvern hátt. Þegar hljómsveitinn gekk í salinn vorum við kynnt fyrir meðlimum hennar. Reyndar kom í ljóst að einn hljómsveitarmeðlima hafði kennt á Hólum svo okkur leið eins og samstarfsfélögum. Því miður sat ég aðeins um hálfan meter frá gítarnum hans. En kvöldið var frábært samt sem áður.
Rannsóknarverkefni mitt um heimflutta á Íslandi mjakast rólega áfram. Ég hef nú fengið í hendur nafnalista yfir þá sem flutt hafa til Patreksfjarðar, Hvammstanga, Siglufjarðar og Vopnafjarðar á síðustu 12 árum. Eftir er að spyrja þá hvers vegna, sem mér þykir nokkuð athyglisverð spurning. Sveitarfélagið Kvænangen í Norður Noregi er einnig hluti af rannsókninni ásamt Færeyjum.
Ég var nýverið í Svíþjóð til að ná í bílin minn og heimsótti í leiðinni Kvænangen sem staðsett er mjög norðarlega í Noregi, fyrir norðan 70. breiddargráðu. Samfélagið er smátt og næsta hótel var um 60 km áður en við komum að áfangastaðnum Burfjord sem er höfuðstaður sveitafélagsins. Morguninn eftir var okkur svo sagt að snjófljóð hefði fallið á veginn um nóttina og hann væri lokaður í einhvern tíma, hversu lengi væri ekki hægt að segja. Vegurinn er E6 vegur og líkur íslenskum vegum að því leiti að það er engin önnur leið sem hægt er að fara í nágrenninu. Við þurftum því að keyra 400 km langan útúrdúr. Það var okkur til happs að dagurinn var sólríkur og fallegur og útsýnið yfir fjöllinn stórskostlegt svo að við nutum þessa auka bíltúrs vel. Hótelherbergið okkar í Alta var svo við strönd Íshafsins með stórkostlegu útsýni. Fundurinn minn í Kvænangen gekk einnig mjög vel.
Á leið okkar til baka með Norrænu stoppuðum við í Þórshöfn í Færeyjum þar sem ég fundaði með ýmsum aðilum sem ég tengist í gegnum verkefnin mín. Fundurinn var haldinn í utanríkisráðuneyti Færeyja, líklegast eina utanríkisráðneytinu í heiminum þar sem maður getur komið og fengið sér kaffi á kaffistofu starfsmanna. Fólkið þar sannfærði mig um að samskipti þeirra við erlend stórvelldi væru góð 
Barnabarn konunnar minnar var með okkur í för (20 ára) frá Svíþjóð til Hvammstanga og það lítur út fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði lokaður þegar að hún ætlar sér að fljúga heim. Ætli við verðum ekki að ættleiða hana.
Kveðja Per Åke
Tags:
Hits: 1114 | Weiterlesen... |
|
2010.04.19 15:43:14 |
|
There are no translations available.
Hugur okkar allra er hjá fólkinu í nágrenni gossins í Eyjafjallajökli sem á á hættu að missa allt sitt og enn á ný erum við minnt harkalega á að náttúran lýtur engum mannlegum lögmálum, hún verður ekki tamin. Hér norðan heiða veltir fólk fyrir sér hver áhrifin verða ef við taka suðlægar áttir. Hvaða áhrif mun öskufallið t.d. hafa á sumarbeit bæði sauðfjár og hrossa á heiðunum?
Ferðaþjónustuaðilar víða um land eru uggandi um áhrif gossins á komandi vertíð en ljóst er að ef gosið verður langvinnt mun það hafa gífurleg áhrif á afkomu margra. Fyrst og fremst snúa áhyggjurnar af því hvort að erlendir ferðamenn komi yfir höfuð til landsins, en á þeim byggir Selasetrið meiri hluta innkomu sinnar yfir sumartímann.
Kveðja, Hrafnhildur
Tags:
Hits: 768 | Weiterlesen... |
|
2010.04.06 16:45:23 |
|
There are no translations available.
Jæja þá erum við Sandra búnar að liggja yfir umsóknum og ganga frá ráðningum fyrir sumarið. Við hlökkum til að takast á við sumarið með frábæru nýju starfsfólki. Helstu nýjungarnar hjá okkur eru þær að í stað þess að ráða í 2 fullar stöður í afgreiðslu og upplýsingamiðstöð réðum við í eina fulla stöðu þar og bjuggum til eina blandaða stöðu þar sem viðkomandi sinnir bæði móttöku ferðamanna og tekur þátt í rannsóknarstarfi setursins. Þar að auki er svo ein ný rannsóknarstaða á sviði náttúrutengdrar ferðaþjónustu. Alls verðum við því 8 talsins í fullri vinnu í sumar.
Undanfarið hef ég unnið með honum Þorsteini á Náttúrustofu Norðurlands vestra við að undirbúa Dag húnvetnskrar náttúru. Þar koma ýmsir fræðimenn og kynna rannsóknir sínar á húnvetnskri náttúru og ýmsu henni tengdu. Dagskráin er fjölbreytt og mjög metnaðarfull og ég hlakka mikið til dagsins. Að dagskrá lokinni bjóðum við svo ráðstefnugestum í nokkurs konar afmælisupphitun í Selasetrinu, en í ár verður setrið 5 ára gamalt og Náttúrustofan 10 ára. Við ætlum okkur svo að halda aðra veglega afmælisveislu þegar að nær dregur sumri þar sem allir verða boðnir.
Ég sé fram á frábært sumar...ef ég kemst einhvern tíman að heiman fyrir snjó þ.e.a.s. :)
kveðja, Hrafnhildur
Tags:
Hits: 762 | Weiterlesen... |
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
<< Start < Zurück 1 2 3 Weiter > Ende >>
|
|