Home
Blog
Über uns
Rannsóknir / Skýrslur
Die Ausstellung
Wildlife watching
Robben an Island
Vatnsnes
Á selaslóðum
Photos
Links
Sitemap
ÍslenskaEnglish
 
Flugtalning 2011
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Mittwoch, 16. November 2011 um 00:00 Uhr
There are no translations available.

 

Rannsóknarskýrsla : Landselstalning úr lofti árið 2011. Framvinda og niðurstöður

 

Stofnstærðarmat á landsel við Ísland

 flugtalning 2011Talningar á fjölda landsela við  Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðinn á vegum Selaseturs Íslands. Markmið verkefnisins var að afla upplýsinga um stöðu íslenska landselsstofnsins. Þetta er tíunda heildartalning landsela úr lofti sem hefur farið fram hérlendis, en slíkar talningar hófust árið 1980. Ekki hefur þó verið talið síðan árið 2006 og var því mjög brýnt að telja  í ár. Talningarnar fóru í ár þannig fram að flogið var yfir alla landshluta allt að þrisvar sinnum og var fjöldi sjáanlegra landsela talin í öllum látrum. Talningar fyrri ára miðuðu að því að fljúga aðeins einu sinni yfir ströndina hvert talningarár. Talningin 2011 er því sú viðamesta sem ráðist hefur verið í til þessa.

Að meðaltali sáust um 4512 landselir, en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006. Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til þess að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003. Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn.

Samstarfsaðilar verkefnisins voru Veiðimálastofnun, Rannsjá, BioPol og Hafrannsóknarstofnun. Verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins er Sandra Granquist, starfsmaður Veiðimálastofunnar og Selaseturs Íslands, en meðverkefnastjóri og aðaltalningarmaður var Erlingur Hauksson hjá Rannsjá. Í verkefninu tóku einnig þátt Arna Björg Árnadóttir, sumarstarfsmaður Veiðimálastofunnar og Jacob Casper starfsmaður Hafró og BioPol á Skagaströnd. Verkefnið er styrkt af Verkefnasjóð Sjávarútvegsráðuneytisins.

Zuletzt aktualisiert am Mittwoch, 16. November 2011 um 15:17 Uhr
 
Kampselur
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Mittwoch, 05. Oktober 2011 um 20:41 Uhr
There are no translations available.

 

Kampselur sem kom í heimsókn inn í Sigríðarstaðavatn í ágúst síðastliðinn

 

kambselur

Kampselur sem kom í heimsókn inn í Sigríðarstaðavatn í ágúst síðastliðinn. Hann velti sér stöku sinnum í vatninu eins og hann væri að eltast við fisk. Þess á milli settist hann á grynningar og lá hálfan tíma eða meira á hverjum stað. Sérkennilegt að sjá hann flatmaga í grunnu vatninu um 3-4 m frá háum bökkum og horfa til lands. Myndirnar tók Sunna Njálsdóttir á leið sinni frá bústað sínum í Vestur-Hópi niður eftir tanganum og komst hún í svona 60 m fjarlægð. við hjá Selasetrinu þökkum henni kærlega fyrir myndina. 

 

Zuletzt aktualisiert am Freitag, 04. November 2011 um 10:55 Uhr
 
Opnun Sýningar í Nýju húsnæði
Geschrieben von: Selasetur Íslands   
Dienstag, 06. September 2011 um 20:46 Uhr
There are no translations available.

dsc_0018Flutningur safns Selaseturs Íslands í nýtt og betra húsnæði.

Sýningaraðstaða og rannsóknarstofa

Selasetrið hefur flutt safn Selaseturs Íslands í nýtt og glæsilegt sýningarými sem er staðsett í húsnæði Kaupfélags Vestur Húnvetninga (KVH) niður við Hvammstangahöfn. Sýninguna hannaði Steinþór Sigurðsson leikmyndahönnuður ásamt Pétri Jónssyni. Í sama húsnæði er einnig ný rannsóknaraðstaða sem er nýtt við líffræðilegar rannsóknir á sel .

Selasetrinu gefst tækifæri til að sýna betur þá muni sem safnið hefur til sýninga. Hið nýja húnsæði er bylting fyrir Selasetrið í því að taka á móti hópum af ferðamönnum/gestum og nú getur setrið betur sinnt fræðslu og kynningu.

Safn Selasetursins er eina selasafnið hér á Íslandi og það leggur metnað sinn í það að varðveita sögu og menningu tengda selveiðum, nýtingu þeirra og gildi þeirra í sögum til forna. 

Markmiðið með þessu nýja safni er að gera safnið eftirminnilegra fyrir þau mörg þúsund gesti sem það sækja á hverju ári, ásamt því að auka þann fjölda ferðamanna sem heimsækja safnið. Upplýsingar um fjölda ferðamanna á Vatnsnesinu og áhugi erlendra ferðamanna á selnum og náttúrutengdri ferðaþjónustu gefur glöggt til kynna að mikilvægt er að hafa öflugt og gott safn sem veitir vitneskju um þá menningu og siði sem fylgdu selnum og selveiðum, auk annarrar almennrar fræðslu um þessi áhugaverðu dýr.

Ýmsar nýungar eru að finna í nýja safninu okkar. Við  erum við  með bíósal þar sem hægt er að horfa á fræðsluþætti um seli , eins verður hægt að nýta salinn sem fyrirlestrarsal o.fl .

Við erum með sér sér deild um selveiðar og hægt er að fylgjast með rannsóknarmönnum að störfum í gegnum gler inni á rannsóknarstofuna svo eitthvað sé nefnt. 

Einnig gefst okkur kostur á að starfrækja enn betri upplýsingamiðstöð ferðamanna ásamt glæsilegri verslun með minjagripi og fleiru.

Verið hjartanlega velkomin til okkar.

Zuletzt aktualisiert am Donnerstag, 15. September 2011 um 20:54 Uhr
 
<< Start < Zurück 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Weiter > Ende >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
 
Selasetur Íslands/Upplýsingamiðstöðin á Hvammstanga | Brekkugata 2
Sími: +354 451 2345 | GSM: + 354 898 5233 | Fax: +354 451 2356 | info[hja]selasetur.is